Elskulegi faðir minn, innilega til hamingju með daginn í gær....læt þetta fylgja þó ég hafi talað 2svar við þig í gær :)
Örn er fluttur inn og við vorum búin að ákveða að fara í dagsferð í dag....á bílnum hans, taka góða göngu, fara svo breiðdalsheiði og niður þórdalsheiði....og leika okkur úti við í dag....en allt kom fyrir ekki, Elín Inga var orðin lasin þegar hún vaknaði...þó hún sé alveg bullandi hress þá er hún hás & með hita, svo við höfðum ekki einu sinni fyrir því að klæða okkur...lágum bara öll í sófanum á náttfötunum og horfðum á "home alone"...
Alex fór svo út að leika sér og við Arnar útí búð....erum núna að horfa á Arsenal - M.united & tökum svo Newcastle leikinn á eftir...að sjálfssögðu....Arnar er nú reyndar að vinna í því að setja upp skrifborðið hans Alexanders...en Alex fær gamla eldhúsborðið sem skrifborð....það ætti að smellpassa undir rúmið hans, vorum búin að ákveða að kaupa sem sagt skrifborð handa honum í afmælisgjöf.....í tíl við rúmið....neinei, það kostar litlar 17.þ krónur...og stóllinn við um 14.þ.....ég fékk bara nett sjokk...algjört bull....
Þó það sé fullt af snjó hérna , þá er voða gott veður og hátt í 10 stiga hiti.....
Í kvöld ætlum við að hafa humarfylltar svínalundir.....mmmm....fæ bara vatn í munni sko,
Ég var að setja Elín Ingu í rúmið áðan, lyfti henni upp og labbaði inní herbergið hennar...hún tók utan um mig og kyssti mig og sagði svo " i love you mamma " - hún er svo yndisleg...
Ég vil hvetja alla sem kíkja við hérna á síðuna að kvitta.....það er svo gaman.
LATER
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Karen mín, kvitt kvitt. Kíki oft. Gulla Hestnes
Ég kíki líka oft og kvitta stundum..vonandi batnar stúlkukindinni sem talar tungum:)
Hæ elskan mín kíki alltaf hérna við en er ekki eins dugleg að kvitta þannig að kvitt kvitt og knús Fannsa
Kvitta hér með
Skrifa ummæli