Hæ hó!!!!
Ég er ekki hætt, búið að vera crazy að gera...
Síðasta fimmtudag komu sem sagt mamma, pabbi og Kristjana...þau gista í húsi sem er hérna rétt hjá eða um 3 hús á milli okkar, en pabbi keypti þetta húsnæði svo nú eiga þau samastað þegar þau koma austur, en þau hafa verið hérna finnst mér í allt sumar...þó pabbi hafi verið hérna einn (svo kom Örn) í rúma viku....bara gaman að þessu.
En sem sagt á föstudeginum fórum við mamma í leiðangur á Egilsstaði, ég þurfti að kaupa afmælisgjöf því okkur var boðið í tvöfalt fertugsafmæli í húsinu hénra við hliðina á laugardeginum....Sammi og Lára heita þau....ég keypti geggjaða gjöf sem sló heldur betur í gegn :) lovely
Svo þegar heim var komið og þessi blússandi blíða var byrjað að mála húsið okkar....já, og við erum sko búin, tók ekki nema rúma 2 daga að mála það....alger snilld Myndir koma síðar :)
Það var ennþá þessi blíða á laugardeginum og afmælið heppnaðist eins og best var á kosið, allir sátu úti og það var grillaður þessi dýrindismatur....hreindýr, naut, lamb, kjúlli.....MMmmm...e-ð fyrir matarmanneskju eins og mig...heheheheh, síðustu gestir fóru klukkan sex um morguninn....mér skilst að ég hafi nú ekki verið eins af þeim...múhahahaha!!!!!
Á mánudeginum varð ég svo heppin að fá strepptókokkasýkingu (hvernig svo sem það er skrifað) og er komin á lyf en þetta gengur nú frekar hægt að jafna sig.....og ferlega sem þetta er ógeðslega vont....ég gjörsamlega grét hérna og hélt að ég væri að deyja og Arnar rauk með mig aftur til læknis, þá sagði hann að ég hefði fengið líka einhverja veirusýkingu og þetta myndi bara taka sinn tíma og að ég þyrfti að hringja strax á vaktina ef þetta myndi vernsa meira.....þá var bara dælt í mig verkjatöflum og ég svaf....vaknaði svo þegar Alexander byrjaði að gubba eins og óður væri....og stóð það yfir í rúman sólahring....æðislegt að lenda í svona veikindum í sumarfríinu....NOT!!!!
Ekki nóg með að vera bullandi lasin þá voru auð vitað mamma og pabbi hérna ennþá, Ása & Gunnar systir mömmu komu á mánudaginn og voru í 2 daga...Lovísa og fjölsk. komu líka á mánudag og voru bara að fara....Guðrún systir Arnars kom í gær og verður framyfir helgi og tengdó eru á leiðinni....það er ættarmót hérna um helgina.....alltaf nóg að gera...ég verð nú orðin hress vonandi á morgun og get tekið þátt í gleðinni :)
Sigga Dísa fékk heimsókn síðustu helgi en það var hún Elín með dóttir sína hana Elínu Eir...þær komu að sjálfssögðu í heimsókn og mjög gaman að hitta þær....alltaf gaman þegar gott fólk kemur.
Ég er nú að velta því fyrir mér með hana Siggu frænku....er hún ekkert að fara að eiga, eða kannski búin og það gleymdist að láta mig vita?????
Jæja gott í bili....ætla að leggja mig aðeins áður en allt liðið kemur heim aftur :)
LATER
P.S....hvar eru kommentin frá ykkur.....þau virðast ekki vera að skila sér ....???
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Hæ elsku dúllan mín, vonandi ertu farin að hressast. Ég er alltaf að leita að góðri helgi til að kíkja á þig hehehe....knús og kremjur Fannsa
Hæ hæ
Ég sendi þér sms á miðvikudaginn um nýjasta erfingjann, ertu komin með nýjan gsm. En það kom allavega lítill drengur, 15 merkur og 52 cm. Gekk hratt og vel fyrir sig. Alveg eins og stóri bróðir þegar hann fæddist nema bara með ljóst hár og ljósari allur. (sem sagt 18 júlí á settum degi)
Ef þú ert komin með nýtt númer sendu mér það á sms.
kv. Sigga
Hæ elskurnar.
Takk fyrir æðislega skemmtilega helgi. Mjög gaman. Verðum í bandi.
Við skulum vona að sigga "frænka" sé búin að finna prikið sitt og fregnir fara um að ég hafi hellt rauðvíni á Karen í gær, fyrirgefðu það. Knúsiði litlu snúllurnar frá mér.
Kubbameistarinn kveður að sinni!
Hehhehehehe....
Don´t be a stranger. :)
Hæææ.... takk fyrir síðast mín kæra systir og takk fyrir okkur:)
Vona að þú sért öll að koma til.
Langaði bara að láta vita að ég sé að lesa bloggið og vildi kvitta.
-Sigga frænka, til hamingju með litla prinsinn!- Jæja verð að halda áfram að pakka, Köben á morgun.
Verðum í bandi, Lovísa
kvittkvitt.. og knúsknús.. er að fylla nýjan poka af fötum á Alex .. þarf að koma þeim til þín..
Mér finnst frábært að sjá hvað allir eru duglegir að heimsækja ykkur, enda ekki leiðinlegt að vera í félagsskap við ykkur hjón:)
Ég vona að þú sért orðin hress, þetta er örugglega ógeðslegt að fá.
En allavega, þá er alltaf gaman að fylgjast með þér og þínum. hafið það gott, Svanfríður og co.
Skrifa ummæli